Hjá Regni berast fyrirspurnir víða að. Eins og hjá mörgum vaxandi fyrirtækjum var haldið utan um þær „með frekar lífrænum hætti“, segir Ásta, stofnandi og framkvæmdastjóri Regns.
Að slökkva elda á mörgum stöðum
„Það var svolítið kaótískt. Við vorum bara skautandi á milli vettvanga til þess að reyna að slökkva elda.“
Fyrirspurnir komu á Instagram, í tölvupósti, á Facebook og jafnvel víðar. Ásta þurfti stöðugt að flakka á milli og fylgjast með hverjum stað. „Maður óttaðist alltaf að vera að missa einhverja bolta,“ segir hún.
Allt annað líf
Þegar Elvo var komið inn breyttist myndin strax.
Auk þess að hafa allt á einum stað fékk Ásta betri yfirsýn yfir umfang notendaþjónustunnar og hve margar fyrirspurnir berast á dag.
Innleiðing á einum degi
Ásta segir sérstaklega frá augnabliki sem sýndi muninn. Hún var byrjuð að þjálfa íhlaupastarfsmann áður en Elvo kom til sögunnar. Þegar starfsmaðurinn mætti aftur til vinnu var Elvo komið upp.
„Ég sýndi henni: ‚Heyrðu, þú þarft ekki lengur að fara inn á alla þessa miðla, þetta er bara komið hér.‘ Það var rosalega gaman að sjá viðbrögðin hennar.“
Byrjar hvern einasta dag í Elvo
Í dag er Elvo fyrsti viðkomustaður dagsins. „Ég byrja hvern einasta dag í vinnunni á að fara inn á Elvo,“ segir Ásta. „Þar hef ég yfirsýn yfir verkefni dagsins fyrir notendaþjónustuna.“
Hún notar stöðluð svör mikið, því margar fyrirspurnir eru sambærilegar. Mestu munar þó um samskiptin innanhúss:
„Ég er framkvæmdastjóri og ég hef yfirsýnina. Þegar það kemur verkefni sem heyrir undir markaðsdeildina eða tæknideildina get ég strax útdeilt því á réttan stað. Ég þarf bara að ýta á einn takka.“
Gervigreindin tekur fyrsta skrefið
Ásta hefur alltaf verið spennt fyrir gervigreind í rekstrinum, því hún sparar tíma og „hugsar ansi mikið hraðar heldur en við gerum“. Hún fer þó alltaf yfir skilaboðin áður en þau fara út úr húsi.
„Það er mjög þægilegt að láta gervigreindina taka fyrsta skrefið.“
Tilbúin fyrir jólin
„Þegar hasarinn byrjar hjá okkur í jólatörninni verður miklu auðveldara að sinna kröfum viðskiptavinarins, vegna þess að við erum komin með Elvo.“
Ef hún þyrfti að fara aftur í gamla fyrirkomulagið væri fyrsta verkið að „finna einhvern aðila eins og Elvo til að hjálpa mér“. Og ráðin til annarra teyma eru einföld:
Í einni setningu: „Þægilegt kerfi og frábær þjónusta.“