Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki

Fólkið á bak við Elvo-þjóninn.

Elvo er samskipta- og samstarfslausn fyrir þá sem vilja veita framúrskarandi þjónustu. Elvo tekur á móti öllum fyrirspurnum, hvaðan sem þær berast, og notar gervigreind til að spara tíma starfsfólks og miðla svörum til viðskiptavina á einfaldan og skilvirkan hátt. Elvo stenst allar kröfur nútímans um hraða og góða þjónustu með aðstoð þess besta sem gervigreind hefur upp á að bjóða. Á sama tíma tryggjum við að tæknin komi aldrei á kostnað upplifunar viðskiptavina.

Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki

Elvo lausnir ehf., kt. 590925-0630. Stofnað og rekið á Íslandi.

Byggt fyrir íslenskan markað

Íslenskt málfar, íslenskar tengingar og þjónusta í þínu tímabelti.

Gögn hýst í Evrópu

Öll gögn eru geymd innan Evrópu og unnin í samræmi við GDPR.

Full stjórn og rekjanleiki

Þú átt gögnin þín og sérð hver gerði hvað, enda til enda.

Framkvæmdastjóri

Stefán Hirst Friðriksson

Stefán Hirst Friðriksson

stefan@elvo.is

Stefán Hirst Friðriksson leiðir uppbyggingu Elvo með þarfir fyrirtækja og viðskiptavina þeirra að leiðarljósi. Stefán starfaði áður sem sölustjóri hugbúnaðarlausna hjá Origo og þar áður hjá Símanum sem deildar- og sölustjóri á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði.

Stefán lauk MS-gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og BA-gráðu í stjórnmálafræði með viðskiptafræði sem aukagrein frá sama skóla.

Stjórn

Björn Brynjúlfur Björnsson

Björn Brynjúlfur Björnsson

Formaður

Björn Brynjúlfur er stofnandi Elvo og framkvæmda­stjóri Viðskipta­ráðs Íslands. Hann hefur víðtæka reynslu af uppbyggingu hugbúnaðar­fyrirtækja og stofnaði áður Moodup og Frama. Björn situr einnig í stjórnum Corus, Frama og Háskólans í Reykjavík.

Davíð Tómas Tómasson

Davíð Tómas Tómasson

Meðstjórnandi

Davíð Tómas leiðir vöxt (e. Chief Growth Officer) hjá Corus, sameinuðu félagi úr Kjarna og Moodup. Hann tók þátt í upp­byggingu Moodup og var framkvæmda­stjóri félagsins þegar það var selt til Skyggnis árið 2025 og sameinaðist Kjarna í kjölfarið.

Stefán Jökull Stefánsson

Stefán Jökull Stefánsson

Meðstjórnandi

Stefán Jökull er stjórnar­formaður fjártækni­fyrirtækisins Kríta. Hann hefur fjölbreytta reynslu af stjórnar- og frumkvöðlastörfum í gegnum árin. Hann sat meðal annars í stjórn Moodup, auk þess að byggja upp Withsara, Sensivo, Heimkaup og fleiri fyrirtæki.

Treyst af íslenskum þjónustuteymum

Fyrirtæki um allt land svara viðskiptavinum sínum með Elvo.

TixWorld ClassKemiFramiKR

Hafðu samband

Við svörum alltaf hratt, hvort sem þú vilt vita meira, bóka kynningu eða byrja að nota Elvo.

Sími framkvæmdastjóra
861 0302
Heimilisfang

Tryggvagötu 11, 101 Reykjavík