Þjónustuskilmálar
Elvo veitir hugbúnaðarþjónustu sem sameinar innhólf, sendingar og samstarfsverkfæri fyrir teymi. Eftirfarandi skilmálar gilda um þjónustuna:
Bakgrunnur
Með því að nota þjónustu Elvo lausna ehf. (hér eftir Elvo) samþykkir fyrirtækið (hér eftir verkkaupi) eftirfarandi skilmála. Sá sem samþykkir skilmála þessa fyrir hönd verkkaupa staðfestir að viðkomandi hafi umboð til þess.
Þjónustan
- Þjónustan innifelur sameiginlegt innhólf, samskipta- og sendingarverkfæri fyrir teymi sem vinna við þjónustu, sölu, bókhald og önnur samskipti við viðskiptavini.
- Elvo skal á gildistíma þjónustusamnings og þar til honum lýkur veita verkkaupa aðgang að framangreindri þjónustu.
- Elvo skal sinna nauðsynlegu tæknilegu viðhaldi og uppfærslum til að tryggja að þjónustan virki með fullnægjandi hætti.
- Elvo skal tryggja að öryggi þjónustunnar og þeirra gagna sem meðhöndluð eru sé fullnægjandi frá tæknilegu sjónarhorni. Nánari upplýsingar um þær ráðstafanir sem Elvo hefur gert til að tryggja öryggi gagna eru aðgengilegar á slóðinni elvo.is/gagnaoryggi.
- Elvo skal tryggja að þjónustan sé aðgengileg verkkaupa að lágmarki 99% af tímanum í hverjum almanaksmánuði, með eftirfarandi undantekningum: (i) niðritími vegna aðgerðaleysis eða tæknilegra vandamála hjá verkkaupa; (ii) niðritími sem er fyrirfram skilgreindur og tilkynnt er um með a.m.k. einnar viku fyrirvara; (iii) niðritími vegna aðstæðna sem Elvo getur ekki haft áhrif á.
- Tæknileg aðstoð í gegnum tölvupóst og skilaboðakerfi er innifalin í þjónustunni. Eins er öll aðstoð sem stafar af tæknilegum vanköntum af hálfu Elvo innifalin. Önnur tæknileg aðstoð eða fræðsla, t.d. í gegnum síma, fjarfundi eða fundi, er samkvæmt verðskrá Elvo hverju sinni.
Verð og greiðsluskilmálar
- Verð þjónustunnar og fjöldi innifalinna notenda koma fram í þjónustusamningi verkkaupa eða, þegar um almennar áskriftarleiðir er að ræða, í verðskrá Elvo. Verð fyrir aðra þjónustuþætti, svo sem viðbætur, er samkvæmt verðskrá Elvo hverju sinni.
- Elvo gefur út reikning við lok þess almanaksmánaðar sem þjónusta er veitt í. Greiðslufrestur er til 15. dags næsta almanaksmánaðar. Að því tímabili loknu ber krafan almenna dráttarvexti. Ef greiðsla hefur ekki borist 10 dögum eftir að greiðslufresti lýkur er Elvo heimilt að frysta þjónustuna eða segja upp þjónustusamningi þessum án fyrirvara, að því gefnu að skrifleg tilkynning þess efnis hafi verið send verkkaupa.
- Upphæðir eru án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram. Upphæðir í tilboðum og í samningum taka breytingum á 12 mánaða fresti í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar á sama tímabili. Grunnvísitala er þá vísitala neysluverðs til verðtryggingar á þeim degi þegar tilboð er gefið út eða áskrift hefst.
Uppsagnarákvæði
- Þjónustusamningurinn gildir frá þeim degi sem verkkaupi undirritar hann eða samþykkir þessa skilmála og er í gildi þar til annað hvort samningsaðila segir honum upp. Uppsögn tekur gildi í lok almanaksmánaðar.
- Uppsagnarfrestur: (i) Fyrir almennar áskriftarleiðir samkvæmt verðskrá Elvo er enginn uppsagnarfrestur. (ii) Fyrir sérsniðnar áskriftir, þ.e. áskriftir þar sem gengið er að tilboði frá Elvo, er enginn uppsagnarfrestur fyrstu þrjá mánuði áskriftartímabils. Eftir það er uppsagnarfrestur sérsniðinna áskrifta þrír mánuðir frá því að uppsögn tekur gildi.
- Rifta má þjónustusamningi án uppsagnarfrests ef annar hvor aðili: (i) vanefnir sínar skuldbindingar verulega og hefur ekki lagfært þær vanefndir innan 30 daga frá skriflegri tilkynningu gagnaðila; (ii) fer í greiðslustöðvun, fjárhagslega endurskipulagningu eða gjaldþrot.
Notkunarréttur
- Elvo veitir verkkaupa rétt til að nota hugbúnaðarþjónustuna svo lengi sem þjónustusamningur er í gildi. Verkkaupi skuldbindur sig til að veita engum öðrum aðgang að þjónustunni en eigin starfsmönnum og verktökum sem starfa í hans þágu.
- Hver notandaaðgangur er ætlaður einum nafngreindum einstaklingi. Óheimilt er að deila notandaaðgangi á milli margra einstaklinga. Verkkaupa er heimilt að flytja notandaaðgang yfir á annan einstakling, til dæmis þegar starfsmaður lætur af störfum. Sameiginleg netföng eins og info@ eða sala@ eru tengd við þjónustuna sem pósthólf og þurfa ekki eigin notandaaðgang.
- Báðir aðilar bera ábyrgð á því að útvega tilskilin leyfi og réttindi eftir atvikum til að uppfylla skyldur sínar samkvæmt þjónustusamningi.
- Verkkaupi staðfestir og ber ábyrgð á því að hafa tilskilin leyfi og réttindi til að geyma og vinna úr þeim gögnum sem eru send til Elvo samkvæmt þjónustusamningi.
Trúnaður
Aðilar skuldbinda sig til að virða trúnað með því að greina ekki þriðja aðila frá innihaldi þjónustusamnings eða upplýsingum sem þeir fá aðgang að hans vegna.
Persónuupplýsingar
- Til að uppfylla þjónustusamning mun Elvo vinna með gögn sem innihalda persónuupplýsingar fyrir hönd verkkaupa. Í slíkri meðhöndlun er verkkaupi ábyrgðaraðili og Elvo vinnsluaðili. Með samningi þessum undirgangast aðilar samhliða vinnslusamning, en skilmálum hans er lýst á slóðinni elvo.is/vinnslusamningur.
- Persónuupplýsingar sem tilheyra verkkaupa verða meðhöndlaðar af Elvo í hlutverki þess sem vinnsluaðili. Öll slík meðhöndlun skal gerð í samræmi við lög og reglugerðir um persónuvernd.
- Elvo skal hafa persónuverndarstefnu sína aðgengilega hverjum sem er á gildistíma samningsins. Slóð á persónuverndarstefnuna er elvo.is/personuvernd.
Undirverktakar
Aðilum er frjálst að nota verktaka eða undirverktaka til að höndla með upplýsingar sem þeir fá aðgang að vegna þjónustusamnings eftir því sem þörf krefur svo lengi sem viðkomandi aðilar skuldbinda sig til að virða ákvæði um trúnað, persónuvernd og meðhöndlun persónuupplýsinga með sama hætti og samningsaðilar.
Takmörkun ábyrgðar
- Elvo er ekki ábyrgt fyrir óbeinu eða afleiddu tjóni, svo sem töpuðum hagnaði, töpuðum tekjum, gagnatapi eða rekstrarstöðvun, sem hlýst af notkun þjónustunnar eða af því að þjónustan er óaðgengileg.
- Heildarábyrgð Elvo gagnvart verkkaupa samkvæmt þjónustusamningi takmarkast við þá upphæð sem verkkaupi hefur greitt Elvo fyrir þjónustuna á þeim 12 mánuðum sem fóru á undan þeim atburði sem olli tjóninu.
- Takmarkanirnar í þessum kafla eiga ekki við um tjón sem orsakast af stórkostlegu gáleysi eða ásetningi Elvo.
Lög og varnarþing
- Þjónustusamningurinn og skilmálar þessir lúta íslenskum lögum.
- Ágreiningi sem rís af þjónustusamningnum og aðilar geta ekki leyst með samkomulagi skal skjóta til Héraðsdóms Reykjavíkur.
Breytingar á skilmálum
- Elvo áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum en skal þó tilkynna um það með a.m.k. 15 daga fyrirvara. Elvo skal tilkynna verkkaupa um breytingar á skilmálunum með tölvupósti og með því að gera nýju skilmálana aðgengilega á elvo.is/skilmalar.
- Hafni verkkaupi ekki breytingu á skilmálunum innan 15 daga frá því að hann fékk um það tilkynningu með tölvupósti samþykkir verkkaupi hina breyttu skilmála. Hafni verkkaupi hinum breyttu skilmálum innan framangreinds tímabils telst sú höfnun jafngilda uppsögn á samningnum samkvæmt fyrrnefndum ákvæðum og gilda á uppsagnartímabili þeir skilmálar sem síðast voru í gildi milli aðila með samþykki beggja.