Hjá World Class berst mikið af fyrirspurnum á hverjum degi. Þær snúast um áskriftir, uppsagnir, kortanúmer og allt þar á milli. Árný og Linda, þjónustustjórar World Class, sjá um mestallan póstinn.
Úr Outlook og ChatGPT yfir í eitt kerfi
Áður héldu þær utan um fyrirspurnir í Outlook, og á Instagram og Facebook voru alltaf skilaboð í gangi líka. Önnur þeirra var byrjuð að nota ChatGPT til að hjálpa við svörin, sem þýddi að afrita og líma á milli glugga.
„Elvo hefur í rauninni alveg komið í staðinn fyrir það. Við þurfum ekki að fara þar inn og copy-pasta, heldur kemur þetta bara þarna.“
Stærsta breytingin, segja þær, er að gervigreindin hjálpar þeim að svara og sparar tímann sem fór í hvern póst.
Samstarfsfólkið inni í sama kerfi
Þó að Árný og Linda noti Elvo mest geta þær merkt samstarfsfólk inn í mál þegar þær þurfa svar við einhverju.
„Maður þarf ekki að vera að senda tölvupóstinn áfram og bíða eftir svari. Við getum bara spjallað í skilaboðunum inn á milli, og svo svarað viðkomandi, eða samstarfsfólkið klárað málið sjálft.“
Innleiðingin: innan við tvær vikur
Það leið ekki langur tími þar til teymið var farið að nota Elvo af fullum krafti, innan við tvær vikur. Ábendingar um hvað mætti betur fara skiluðu sér líka fljótt inn í kerfið.
Og augnablikið þegar þetta small er þeim enn minnisstætt:
„Ég man ekki nákvæmlega hvaða dagsetning það var, en ég man að ég stökk upp úr stólnum og hljóp fram til hennar: ‚Þetta er svo geggjað!‘ Þá kom svar sem var bara nákvæmlega rétt og ég gat bara ýtt á senda.“
Persónulega lokahöndin
Gervigreindin skrifar tillögu, en þær vilja alltaf vita hvað er sent.
Flókin mál leysa þær áfram sjálfar. Almennar fyrirspurnir, eins og uppsagnir á áskriftum, eru hins vegar orðnar miklu fljótlegri. Þar koma stöðluð svör líka að góðum notum.
Frá tveimur til þremur dögum niður í sólarhring
„Í dag erum við að ná að svara samdægurs eða innan sólarhrings. Ef við værum að vinna eins og áður, þá voru það tveir, þrír dagar.“
Auka starfsmaður
Ráðin til annarra fyrirtækja eru stutt: „Go for it. Hiklaust.“
Í einni setningu: „Það er eins og að hafa aðstoðarmann í vinnunni.“