Verðskrá 2026

Verðskrá fyrir öll teymi

Borgaðu á sæti á mánuði. AI-úrlausnir og Raddþjónninn eru valkvæðar viðbætur á einföldu einingaverði — og enginn samningur sem bindur þig.

Lítill

Fyrir lítil teymi sem byrja með sameiginlegt innhólf

2.900 kr.á sæti / mán (+vsk.)
Prófa frítt
VöxturVinsælast

Fyrir vaxandi teymi með fleiri rásir og meiri sjálfvirkni

5.900 kr.á sæti / mán (+vsk.)
Prófa frítt
Stór

Fyrir stærri teymi með öryggis- og stjórnunarkröfur

12.900 kr.á sæti / mán (+vsk.)
Prófa frítt
Sérsniðið

Fyrir fyrirtæki með sérþarfir og samningskröfur

TilboðSniðið verð
Bóka kynningu
Notkun og sæti

Greiðsla er miðuð við hvert virkt sæti. Lítill leyfir allt að 5 sæti og Vöxtur allt að 10. Stór og Sérsniðið hafa engin takmörk.

Allt að 10

Engin takmörk á fjölda erinda — þú borgar aldrei fyrir að viðskiptavinir hafi samband.

Ótakmörkuð
Rásir og innhólf

Tengdu núverandi netföng fyrirtækisins — engin breyting á póstkerfinu nauðsynleg.

Svaraðu skilaboðum frá Facebook, Instagram og WhatsApp á sama stað og tölvupósti. Í Lítill telja sameiginleg pósthólf og samfélagsmiðlarásir saman upp í samtals 2.

Ótakmörkuð

Íslenskt númer sem gervigreindin svarar fyrir þig — 100 mínútur innifaldar á mánuði, síðan 40 kr./mín. Hvert símtal verður að samtali í Elvo.

4.900 kr./mán.

Netföng fyrirtækisins sem teymið deilir, annaðhvort tengd pósthólf eða áframsendingar (t.d. hjalp@, sala@). Persónuleg pósthólf (eigið pósthólf þjónustufulltrúa) eru ótakmörkuð í öllum áskriftum og telja aldrei.

3

Spjallgluggar fyrir vefsíðurnar þínar, sem Spjallþjónn og teymið þitt svara.

1

Aðskilin vinnusvæði með eigin pósthólfum, fólki og stillingum.

3
Gervigreind

Hladdu upp skjölum og vefsíðum sem gervigreindin styðst við í svörum sínum.

Svör taka mið af gögnum, vörum og tóni fyrirtækisins þíns.

Erindi eru flokkuð, forgangsröðuð og merkt sjálfkrafa um leið og þau berast.

Gervigreindin semur svartillögu út frá samhengi erindisins — starfsmaður yfirfer og sendir.

Gervigreindin svarar viðskiptavini sjálf og lokar erindinu án aðkomu starfsmanns. Svari viðskiptavinurinn aftur telst engin úrlausn.

90 kr. hver
Sjálfvirkni og forritaskil

Settu upp reglur sem flokka, úthluta og svara erindum sjálfkrafa eftir skilyrðum sem þú velur.

Ótakmarkaðar

Vistaðu algeng svör og settu þau inn með einum smelli.

Ótakmörkuð

Tengdu Elvo við eigin kerfi og sjálfvirkni í gegnum skjalað REST API.

Fáðu rauntímatilkynningar í þín kerfi þegar erindi verða til eða breytast.

Shopify, WooCommerce, HubSpot, Dropp, Payday, Regla, Abler, Upsell og Caren.

Ótakmarkaðar

DK Plus, Business Central, LS Retail og sérsniðin tenging við þinn eigin endapunkt.

Við setjum upp síma og smíðum tengingar við þín eigin kerfi, t.d. bókhalds- eða birgðakerfi.

Samvinna og hlutverk

Ræddu erindi innbyrðis án þess að viðskiptavinurinn sjái — merktu samstarfsfólk með @.

Stjórnendur stýra stillingum og aðgangi; fulltrúar vinna úr erindum.

Stjórnandi og fulltrúi

Viðmót gagnvart viðskiptavinum ber merki og liti fyrirtækisins þíns.

Samræmd undirskrift fyrir allt fyrirtækið, stillt miðlægt.

Öryggi og samningar

Starfsfólk skráir sig inn með fyrirtækjaaðganginum sínum — engin auka lykilorð.

Heildaryfirlit yfir aðgerðir notenda í kerfinu — hver gerði hvað og hvenær.

Stýrðu hversu lengi gögn eru geymd, í samræmi við eigin reglur.

Hægt að semja um að gögnin þín séu hýst á Íslandi.

Formlegir samningar um persónuvernd og þjónustu, undirritaðir af báðum aðilum.

Skrifleg trygging fyrir uppitíma kerfisins með skilgreindum viðbragðstíma.

Greining og stuðningur

Yfirlit yfir fjölda erinda, svartíma og afköst teymisins.

Frammistöðumælaborð með ítarlegri tölfræði sem hægt er að flytja út.

Aðstoð frá teyminu okkar þegar þú þarft á að halda.

Tölvupóstur

Komdu þér af stað á nokkrum mínútum, eða með teyminu okkar á staðnum á Sérsniðið.

Sjálfsafgreiðsla

Náðu í teymið okkar utan hefðbundins vinnutíma vegna áríðandi mála.

Valkvæð viðbót

AI-úrlausnir

Gervigreindin svarar viðskiptavinum samstundis út frá þekkingargrunni fyrirtækisins og lokar erindum sem hún leysir að fullu — án aðkomu starfsmanns. Þú borgar eingöngu fyrir samtöl sem hún leysir í raun.

90 kr.

á úrlausn (+vsk.)

Í boði á öllum áskriftarleiðum

Alveg valkvætt

Þú stýrir því hvort gervigreindin svarar sjálf og getur slökkt á því hvenær sem er. Óvirk gervigreind kostar ekkert.

Engar blindgötur

Ef gervigreindin er ekki viss færist samtalið beint til teymisins þíns — og þá telst engin úrlausn. Sama á við ef viðskiptavinurinn svarar aftur eftir svar gervigreindarinnar.

Þak á kostnað

Þú getur sett mánaðarlegt hámark á AI-úrlausnir og fylgst með notkuninni í stillingum — reikningurinn kemur aldrei á óvart.

Valkvæð viðbót

Raddþjónn — gervigreindarþjónn fyrir símann þinn

Raddþjónninn svarar símanum hjá fyrirtækinu þínu á íslensku, dag og nótt. Hann svarar spurningum úr þekkingargrunni fyrirtækisins, sendir símtöl áfram til starfsfólks þegar þörf krefur og tekur við skilaboðum utan opnunartíma — og hvert símtal birtist sem samtal í Elvo.

4.900 kr.

á mánuði á símanúmer (+vsk.) — 100 mínútur innifaldar, síðan 40 kr./mín.

Í beta — í boði á öllum áskriftarleiðum

Hvað er innifalið

Íslenskt símanúmer — eða framsendu núverandi númer — uppsetning með teyminu okkar, og 100 símtalamínútur á mánuði, sem samsvarar um 100–150 dæmigerðum símtölum.

Umfram innifaldar mínútur

Mínútur umfram innifalið magn kosta 40 kr. hver, og bætast sem lína á næsta reikning. Flest fyrirtæki ná aldrei þessum takmörkum.

AI-úrlausnir virka eins í síma

Símtöl sem Raddþjónninn leysir að fullu sjálfur teljast sem AI-úrlausnir á 90 kr. hver, rétt eins og í spjalli og tölvupósti.

Fyrirtæki sem treysta Elvo

TixWorld ClassKemiFramiKR

Algengar spurningar um verðlagningu

Hvernig virkar 14 daga prufan?
Þú skráir þig með kennitölu — engin kreditkort. Þú færð fullan aðgang að Pro-eiginleikum í 14 daga. Ef þú segir ekki upp innan prufutímabilsins fer áskriftin sjálfkrafa á valið verðplan og þú færð senda kröfu í heimabankann frá Payday.
Hvað er „AI-úrlausn“?
AI-úrlausn er þegar gervigreindin svarar viðskiptavini sjálf og samtalið leysist án nokkurrar aðkomu starfsmanns — óháð rás (tölvupóstur, spjall, samfélagsmiðlar, sími). Svartillögur sem starfsmenn samþykkja og senda sjálfir, sjálfvirk flokkun, merkingar og þýðingar teljast aldrei sem úrlausnir — það er innifalið í sætaverðinu.
Þarf ég að nota AI-úrlausnir?
Nei. AI-úrlausnir eru valkvæð viðbót — þú stýrir því hvort gervigreindin svarar viðskiptavinum sjálf og getur slökkt á því hvenær sem er. Allt annað í Elvo virkar óbreytt án hennar, og óvirk gervigreind kostar ekkert.
Hvernig eru AI-úrlausnir rukkaðar?
Eftir á — úrlausnir mánaðarins bætast sem lína á næsta reikning. Hvert samtal telst í mesta lagi einu sinni, sama hversu mörgum spurningum gervigreindin svarar í því, og svari viðskiptavinurinn aftur telst engin úrlausn.
Getum við sett þak á AI-kostnað?
Já. Þú getur sett mánaðarlegt hámark á AI-úrlausnir — þegar því er náð hættir gervigreindin að svara sjálf út mánuðinn, en svartillögur og önnur AI-aðstoð virka áfram. Reikningurinn kemur því aldrei á óvart.
Hvað kostar Raddþjónninn?
Línugjaldið er 4.900 kr. á mánuði fyrir hvert símanúmer (+vsk.). Það felur í sér íslenskt númer, uppsetningu með teyminu okkar, og 100 símtalamínútur á mánuði — sem samsvarar um 100–150 dæmigerðum símtölum. Mínútur umfram það kosta 40 kr. hver, og bætast sem lína á næsta reikning. Mínútur telja allan tíma símtalsins, þar með talið eftir framsendingu til teymisins þíns.
Borga ég bæði mínútur og AI-úrlausn fyrir sama símtal?
Þetta eru ólíkir hlutir. Línugjaldið og mínúturnar greiða fyrir símann sjálfan — númerið, svörunina, framsendingarnar. Verð fyrir AI-úrlausn (90 kr.) á aðeins við þegar Raddþjónninn leysir mál hringjandans að fullu sjálfur, rétt eins og í spjalli og tölvupósti. Flest símtöl falla innan innifalinna mínútna, svo leyst símtal bætir venjulega aðeins við 90 kr. úrlausnargjaldi.
Gilda viðbótarverð líka á Sérsniðið?
Já. AI-úrlausnir og Raddþjónninn eru gjaldfærð samkvæmt birtri verðskrá á öllum áskriftarleiðum, þar á meðal sérsniðnum samningum — nema samningurinn þinn kveði skýrlega á um annað.
Sjá samstarfsmenn mínir persónulegu póstana mína?
Nei. Teymið sér aðeins sameiginlegu pósthólfin sem fyrirtækið tengir (t.d. hjalp@ eða sala@). Persónuleg pósthólf og bein skilaboð eru aðeins sýnileg þér.
Telja persónuleg pósthólf upp í takmörkin?
Nei. Persónuleg pósthólf (eigið pósthólf þjónustufulltrúa) eru ótakmörkuð í öllum áskriftum og telja aldrei upp í takmörk. Aðeins sameiginleg pósthólf telja: tengd pósthólf eða áframsendingar sem teymið deilir, eins og hjalp@ eða sala@.
Get ég breytt um pakka hvenær sem er?
Já. Þú getur uppfært, lækkað eða sagt upp hvenær sem er. Breytingar gilda strax og næsti reikningur er reiknaður út frá nýja pakkanum (pro-rated).
Getið þið flutt gögn úr Zendesk, Help Scout eða Front?
Já. Innleiðingarteymið okkar aðstoðar við flutning frá öðrum þjónustukerfum á Stór og Sérsniðið. Á Vöxtur getum við vísað þér á flutningsverkfæri okkar.
Eruð þið með sérstök verð fyrir frjáls félagasamtök eða nýsköpunarfyrirtæki?
Já — hafðu samband við okkur með kennitölu og við skoðum afslátt af Vöxtur eða Stór fyrir samþykkta umsækjendur.

Prófaðu Elvo í 14 daga

Engin kreditkort. Aðeins kennitala til að virkja reikning ef þú heldur áfram.