Vefþjónusta (API)
Tengdu Elvo við önnur kerfi með REST API-i — lesið og skrifað samtöl, tengiliði og fleira fyrir samþættingar og sjálfvirkni.
Elvo er með opið REST API svo þú getir tengt Elvo við önnur kerfi — lesið og skrifað samtöl, tengiliði, notendur og fyrirtækjagögn. Þetta hentar fyrir samþættingar, sjálfvirkni og AI-fulltrúa.
Sjá líka: Notaðu eigin gervigreind í Elvo.
Hér eru helstu atriði. Heildarskjölun með öllum endapunktum, viðföngum og dæmum er í API-skjölunum.
Aðgangslyklar
Búðu til lykil undir Stillingar → Vefþjónustur (þú þarft að vera stjórnandi). Þú velur:
- Nafn og gildistíma.
- Aðgang — Lestur (
GET/HEAD) eða Skrift (líkaPOST/PATCH/DELETE).
Lykillinn birtist aðeins einu sinni — afritaðu hann strax og geymdu á öruggum stað. Elvo sýnir hann aldrei aftur.
Auðkenning
Sendu lykilinn í Authorization-hausnum á hverri beiðni. Grunnslóðin er
https://elvo.is/api/public/v1.
curl https://elvo.is/api/public/v1/conversations \
-H "Authorization: Bearer elvo_xxxxxxxxxxxxxxxxxxxx"Hvað er hægt að gera
- Samtöl — sækja, stofna og uppfæra mál og skilaboð — þar á meðal stöðu og
merki (síaðu líka eftir merki með
?tag=). - Tengiliðir og notendur — lesa og uppfæra.
- Fjarvera — lesa, stilla og hreinsa eigin fjarveru í gegnum
/me/out-of-office; virk fjarvera samstarfsfólks birtist semout_of_officeá notendum. - Fyrirtækjagögn — sækja teymi, rásir (öll tengd pósthólf, Meta-síður, WhatsApp-númer, spjallþjón og símalínu, ásamt teyminu sem þær beinast í) og stillingar.
Webhooks
Skráðu webhooks til að fá tilkynningar í rauntíma þegar atburðir gerast (t.d. þegar nýtt mál berst), í stað þess að spyrja API-ið reglulega. Uppsetning og atburðir eru í API-skjölunum.
Heildarskjölun
Allir endapunktar, viðföng og kóðadæmi á mörgum tungumálum eru í API-skjölunum — þar geturðu líka prófað beiðnir beint.