ElvoHandbók ElvoLeiðbeiningar og svör um Elvo

Áskrift og verðskrá

Veldu áskriftarleið, sjáðu hvað fylgir hverri, og stýrðu greiðslum og reikningum.

Elvo er með nokkrar áskriftarleiðir eftir stærð og þörfum fyrirtækisins. Undir áskrift sérðu hvað fylgir hverri leið, velur þá sem hentar, og sérð reikningana þína.

Áskrift og verðskrá undir Stillingar → Áskrift.
Áskrift og verðskrá undir Stillingar → Áskrift.

Áskriftarleiðir

  • Lítill: allt að 5 sæti. Tvær sameiginlegar rásir samtals, hvaða blanda sem er af sameiginlegum pósthólfum, Facebook, Instagram og WhatsApp. Einn spjallgluggi, eitt teymi, allt að 5 sjálfvirkar reglur, allt að 25 flýtisvör og ein staðluð tenging.
  • Vöxtur: allt að 10 sæti, allt að 3 sameiginleg pósthólf, ótakmarkað Facebook, Instagram og WhatsApp, einn spjallgluggi og 3 teymi. Ótakmarkaðar sjálfvirkar reglur, flýtisvör og staðlaðar tengingar, auk greiningar (Frammistaða), opinna REST-forritaskila og vefkróka.
  • Stór: engin takmörk á sæti, pósthólf, teymi, spjallglugga eða rásir. Bætir við úrvalstengingum, SSO (SAML/Entra), atvikaskráningu og SLA með uppitíma-ábyrgð.

Smelltu á Velja leið til að skipta um áskrift.

Hvað telur upp í takmörkin

Sameiginleg pósthólf eru netföng fyrirtækisins sem teymið deilir, annaðhvort tengd pósthólf eða áframsendingar (t.d. hjalp@ eða sala@). Persónuleg pósthólf (eigið pósthólf þjónustufulltrúa) eru ótakmörkuð í öllum áskriftum og telja aldrei upp í takmörk.

Staðlaðar tengingar: Shopify, WooCommerce, HubSpot, Dropp, Payday, Regla, Abler, Upsell og Caren. Úrvalstengingar, í Stór og ofar: DK Plus, Business Central, LS Retail og sérsniðin tenging við þinn eigin endapunkt.

Sérsniðin lausn

Fyrir stærri fyrirtæki bjóðum við sérsniðið verð, vinnslusamning (DPA), sérsniðna þjónustustigsábyrgð, síma- og sérlausnir, og þjónustu og innleiðingu á staðnum. Hafðu samband við Stefán framkvæmdastjóra beint af áskriftarsíðunni.

Reikningar

Elvo rukkar með reikningum (ekki greiðslukortum). Reikningur er sendur í lok hvers mánaðar með eindaga 15. næsta mánaðar.

Algengar spurningar

Hvað kostar hvert sæti? Verð per sæti á mánuði birtist við hverja leið (auk vsk.).

Get ég skipt um leið hvenær sem er? Uppfærslur taka strax gildi. Niðurfærslur taka gildi frá næstu mánaðamótum.

Við notum Elvo í tveimur fyrirtækjum – hvernig er það rukkað? Hvert fyrirtæki hefur sína eigin áskrift og er rukkað sérstaklega, á hvert sæti. Notandi sem er meðlimur í báðum telst vera eitt sæti í hvoru fyrirtæki. Skipt á milli fyrirtækja er lýst í Notendur og hlutverk.

Á þessari síðu