Tilkynningar
Stilltu hvenær og hvernig Elvo lætur þig vita — í vafranum, með tölvupósti og í smáforritunum.
Tilkynningar láta þig vita þegar eitthvað krefst athygli þinnar — nýtt mál, @-nefning eða svar við máli sem þú berð ábyrgð á. Þú stýrir sjálf/ur hvenær og hvernig þú færð þær.

Stilltu tilkynningarnar þínar
Opnaðu Stillingar → Tilkynningar og veldu hvað þú vilt fá tilkynningar um — t.d. þegar þú
ert nefnd/ur með @, þegar þér er úthlutað máli, eða þegar nýtt mál berst í teymið þitt.
Leiðir til að fá tilkynningar
- Í vafranum — tilkynningabjalla og skjátilkynningar á meðan þú ert með Elvo opið.
- Tölvupóstur — samantekt eða einstakar tilkynningar þegar þú ert ekki við.
- Smáforrit — Elvo-öpp senda ýtitilkynningar (push) í símann og tölvuna.
Algengar spurningar
Get ég slökkt á tilkynningum tímabundið? Já — t.d. utan vinnutíma. Stilltu það í tilkynningastillingum.
Af hverju fæ ég ekki tilkynningar? Athugaðu að vafrinn eða síminn leyfi tilkynningar frá Elvo, og að rétt sé stillt hér.