ElvoHandbók ElvoLeiðbeiningar og svör um Elvo
Tengja tölvupóst

Áframsending

Tengdu hvaða netfang sem er við Elvo með því að áframsenda póst á sérstaka Elvo-móttökuslóð.

Áframsending virkar fyrir hvaða netfang eða póstþjón sem er — líka þegar bein Google- eða Microsoft-tenging er ekki í boði. Þú lætur póstkerfið þitt senda allan póst sjálfkrafa á sérstaka móttökuslóð hjá Elvo.

Tengja

  1. Opnaðu Stillingar → Tölvupóstur og smelltu á Bæta við reikningi.
  2. Veldu Áframsending. Elvo gefur þér sérstakt @inbound.elvo.is netfang.
  3. Settu upp áframsendingu (e. forwarding) í þínu póstkerfi þannig að allur póstur berist á þá slóð.
  4. Smelltu á Senda prufu aftur til að staðfesta að póstur berist rétt. Staðan á að sýna Staðfest.

Senda svör frá þínu netfangi

Til að svör fari út frá þínu eigin netfangi (ekki @inbound.elvo.is) þarf póstkerfið að leyfa Elvo að senda fyrir þína hönd, eða þú stillir SMTP. Án þess fara svör frá sjálfgefnu netfangi.

Algengar spurningar

Sér viðskiptavinurinn @inbound.elvo.is? Nei — það er aðeins innri móttökuslóð.

Nær áframsending til eldri pósts? Nei, aðeins nýs pósts eftir að áframsending er sett upp.

Á þessari síðu